Veiðifélagið (Members)



        Fara beint í Fréttir og spjall


Meðlimir og veiðifélagar Mokveiðifélagsins.......


Jón Hallgrímsson (Tengdapabbi Doktorsins)
Fæddur: Á undan okkur öllum
Heiðursmeðlimur Mokveiðifélagsins
hefur veitt fleiri fiska og skotið fleiri dýr
en þú hefur séð :)
Oftast kallaður Jón Bóndi eða Rambó

 

 
Hafsteinn Harðarson
Formaður
Fæddur :
 á þarsíðustu öld.
Hefur verið meðlimur í félaginu síðan
að moldarvegir voru að ryðja sér til rúms
oft kallaður Killerinn...




 
Hörður B. Hafsteinsson
Varaformaður
Fæddur :
á síðustu öld en ekki á þarsíðustu.
Hörður hefur oft fengið þá STÓRA ....
Oft kalaður:Magnum44

magnum44@veidimenn.com

 



Sævar Örn Hafsteinsson
Gjaldkeri og ritstjóri
Fæddur :
 fyrir aðeins lengra en skömmu
Gefst ekki upp þó að móti blási.
Mikið fyrir sopan en veiðin gengur
þó alltaf fyrir.
Svarar oft nafninu Morgan
eða Sævar Sæti !!!
morgan@veidimenn.com

 




Ólafur Hafsteinsson
Formaður Skemmtinefndar
Fæddur :
Það er ekki svo langt síðan.
Alveg helvíti magnaður í veiðinni þegar hann er ekki
á djammi og kvennafari.
Oft kallaður Djammarinn eða Baukurinn




Þorsteinn F. Guðmundsson
Ritstjóri og Stjórnarformaður
Fæddur :
það er ekki vitað. 
En hann man vel eftir Jóni Arasyni og Hallgerði Langbrók.
Fer oft hægt en er oft fyrstur.
Oft kallaður Rock
rock@veidimenn.com




Læknir Mokveiðifélagsins
Árni Jóhannesson
Fæddur:
Eftir krist.
Geðlæknir (Hjúkka í hálfu starfi)
Kemur frá Norge
Sér Mokveiðifélaginu fyrir geðlyfjum þegar lítið veiðist
Gengur undir nafninu Doktorinn
heja norge





Lögreglumaður Mokveiðifélagsins
Grétar Viðarsson
(tengdafaðir Morgans)
Fæddur: það er lögreglumál og verður ekki
gefið upp að svo stöddu.
Sér um lagalegu hliðar Mokveiðifélagsins og
gengur undir nafninu: Löggan eða John McClain



G.Frímann Þorsteinson
(Pabbi Rock)
Fæddur: Það Guð einn veit, en hann
tók bílpróf á hestakerru fyrir austan með 
ásamt Árna á Upsölum
Gengur undir nafninu Manix
Er mjög gamall en leynir á sér



Árni Gunnar Sveinsson
Fæddur: rétt fyrir eða eftir krist ekki vitað
Er mikið að neglann..
Stundar veiðina með annari þegar hann kemst.
Oftast kallaður Smiðurinn
Búinn að "negla" þá marga




Sindri Árnason (sonur smiðsins)
Fæddur: næstum því í gær :) en er
Farin að láta mikið á sér bera í veiðinni,
hefur meðal annars reddað veiðiferðum
mokveiðifélagsins með því að setja í fiska
þegar allir voru búnir að gefast upp.
Oftast kallaður Smiðssonurinn



Brynjar Daði Harðarson
Fæddur:
í gær eins og Sindri en er að
verða jafn djöfulli magnaður og Pabbi sinn
og þess vegna oftast kallaður Magnum junior




Logi F Sveinsson
Fæddur:
Ekki fyrir svo löngu
Er að verða alveg hámentaður og er allur að koma til í veiðinni.
Helvíti magnaður í drykkjunni og alveg sprengju óður.
Oftast kallaður: Eldurinn






Ómar Feykir Sveinsson
Fæddur
: fyrir aðeins lengra en skömmu
Búinn að ná þessum yfir 20.pundin en er þó oftast upp í
gröfu. 


Óskar Atlason
Fæddur:
fyrir aðeins lengra en skömmu
Hreindýrabóndi að austan
og öryggisfulltrúi
Er mikið í veiða og sleppa aðferðinni,
en líkar vel við Erlingsen aðferðinna






Jói Máfur
Fæddur:
eitthvað fyrir tíma moldarvegana
Fær stundum að fljóta með.
Ef Jói veit það ekki, veist þú það ekki.
Jói er mikið hlyntur veiða og sleppa aðferðinni.
Gengur undir nafninu Jói Máfur





Karl Einarsson

Fæddur: Fyrir löngu
Kalli á allt sem við kemur veiði, ef
kalli á það ekki þurfum við það ekki.
Veiðimaður af guðsnáð hvort sem er í stangaveiði eða skotveiði.
Oftast kallaður Karl Barón



Bergsveinn Arilíusar(Beggi Búbbason)
Fæddur:
Já já allavegna fæddur
Að verða ansi magnaður morðingi í gæs.
Kemur sterkur inní stangveiðinna vorið 2008
Oft kallaður Bobby Fisher eða
rjúpnabaninn mikli



Ásbjörn Ólafur Ásbjösson
Fæddur: Það er orðið töluvert síðan.
Fjármálastjóri af verstu gerð,
svo sprenglærður rekstrarfræðingur
að það hálfa væri nó.
Gengur undir nafninu: Fjári




Hörður Ásbjösson
Fæddur: Ekki fyrir svo löngu
Býr á Ítalíu núna, og er víst
búinn að koma sér vel fyrir meðal Ítölsku mafíunar.
Atvinnu ljósmyndari með fleiru
oftast kallaður:  Höddi hennar Kollu




Jón Arilíus Ingólfsson
Fæddur: á sama tíma og Killerinn.
Er skipstjóri og rekstrarfræðingur
hefur marga fjöruna sopið
oftast kallaður: Nonni litli




Hörður Gunnar Ingólfsson
Fæddur: fyrir þó nokkru.
Kindabóndi að vestan með meiru.
Gengur oft undir nafninu Höddi feiti
þó tágrannur sé.







Júlíus Jóhannsson
Fæddur:
já já óþarfi að vera með leyðindi
Gjafmildari en andskotinn
og sér mokveiðifélaginu fyrir fjármagni
Forstjóri í hlutastarfi
Hefur leikið í kvikmyndum eins og Gosi spýtustráku
og Liar liar



Henrik Mortensen
kemur oft með þegar ekki er mikið að gera
lífsmottó " Got him, beutiful grills" lærði allt sem hann kann hjá Morgan Frænda,
nema á tvíhendu Magnum 44 kendi honum á hana.




Eric Clapton
Mikið í músic en gefur sér oft tíma til að hitta strákana eftir að hann er búinn
að veið í Laxá á ásum. Er kanski ekki jafn lipur með stöngina og gítarinn, en
Rock er að verða búinn að kenna honum undirstöðuatriðin.

 

 

 

 

 

Flettingar í dag: 415
Gestir í dag: 61
Flettingar í gær: 720
Gestir í gær: 111
Samtals flettingar: 890855
Samtals gestir: 188562
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 14:51:47