24.08.2010 19:25

Aðaldalurinn


Mokveiðifélagið kom sá og sigraði emoticon 

Fyrsta ferð Mokveiðifélagsins í Aðaldalinn nessvæði er búin og var alveg geðveik.

Strákarnir enduðu í 14 löxum og svo landaði Rock trölli.


          
                                 Rock með kvikindið 103cm 24pund tekin á Skrögg

           
                                            

Ekki leist nú Ara gæd vel á skagfirðingana þegar þeir komu vopnaðir
einhendunum sínum og sögðust vera komnir til að veiða.

Allt byrjaði þetta með rólegheitum og voru strákarnir fisklausir eftir
fyrstu vaktina og leist nú ekki alveg nógu vel á veðrið, brjálað rok og
mígandi rigning.


                   
                            Baukurinn með 85cm hrygnu tekin á rauða Kröflu

Svo fóru hlutirnir að gerast og voru strákarnir að fá allt
upp í 5 fiska á vakt.

                  
                             Magnum44 með 80cm hrygnu tekin á Kolskegg

Síðasta morguninn var svo hátindi ferðarinnar náð
Þorsteinn Fríman Guðmundsson setti í og landaði trölli,
103cm hængur viktaður í háfnum 24pund.

Þar með fór Rock ekki bara í 20punda klúbbinn heldur hljóp
yfir nokkur pund í viðbót.emoticon

Hollið endaði svo í 40 löxum og þykir víst bara nokkuð gott.

                 
                                Morgan með 73cm hæng veiddan á Iðuna

Doktorinn kom svo og kíkti á stákana og fékk að kasta einu sinni
og vitið menn fékk fisk í fyrsta rensli.
71cm hæng tekin á Orange Kröflu

             
                                                    Doktorinn með 71cm hæng tekinn á Orange kröflu

Fullt af myndum eru í myndaalbúminu frá ferðinni og fleiri á leiðinni.

Flettingar í dag: 408
Gestir í dag: 60
Flettingar í gær: 720
Gestir í gær: 111
Samtals flettingar: 890848
Samtals gestir: 188561
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 14:29:11