16.08.2010 16:21

Aðaldalurinn........


                 

Hólí mólí 4 dagar í Aðaldalinnemoticon

Oft hafa Mokveiðimenn farið á ný svæði og gengið bara
svona helvíti vel og jafnvel framar björtustu vonum.

Nú er hinsvegar búið að hræða meðlimi félagsins svo mikið
að sumir hverjir eru farnir að efast um eigið ágæti.

               

Menn tala um að það það verði að vera með tvíhendur, þessi fluga verður
að vera í boxinu, loftslagið þarf að vera á litin eins og flugan og botnin, fiskurinn
taki ekki nema á heila tímanum og svo má víst ekki gleyma að mæta með bindi.

Sumir meðlimir taka þessu þó með ró og segja eins og svo oft áður... þetta er ekkert mál emoticon  annað hvort er maður með þetta..... nú eða ekki emoticon 

                
           Rock segist ekkert þurfa tvíhendu hann á víst gamlar sjóstangir sem hann
                                 segist hafa dregið allt upp í 30 punda þorska á emoticon

Búið er að bóna allar línur 2-3 sinnum, endurraða í fluguboxin aftur
og aftur og búið að velja sér bindi og skyrtu til að vera í.

                      
                 Við ætlum að fá einn svona langan þurfum bara að vera 4 á stöng

Þetta bara getur ekki klikkað.... er það nokkuð? emoticon


Flettingar í dag: 408
Gestir í dag: 60
Flettingar í gær: 720
Gestir í gær: 111
Samtals flettingar: 890848
Samtals gestir: 188561
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 14:29:11