04.08.2010 22:32

Jöklusvæðið


Jöklusvæðið sveik ekki þrátt fyrir að jökla sjálf væri kominn
á yfifall.

              
                            Kaldáinn kemst á stall með flottustu vatnsföllum á landinu

Mokveiðifélagið ásamt nokkrum félögum úr Óðfluga voru að 
klára holl á Jöklusvæðinu. 
Hollið endaði í 23 löxum og nokkrum bleikjum sem voru stærri en
sumir laxarnir.

Menn voru að setja í mikið af fiski og með smá heppni hefði
hollið hæflega getað farið yfir 50 fiska, en mikið var um grannar 
tökur og voru menn að missa mikklu fleyri fiska heldur en
þeir voru að landa.

Eins og fram kom var Jökla komin á yfirfall og óveiðanleg vegna þess.

Kaldá fór vægast sagt á kostum og reddaði túrnum gjörsamlega,
voru men sammála um að þetta væri það sem væri svo magnað
við Jöklusvæðið að ef ein áinn er úti þá er alltaf von um að hinar
hliðarárnar séu af gefa fiska.

             
                                   85cm lax úr Kaldá á Kolskegg

Laxá og fögruhlíðará voru frekar vatnslitlar en þrátt fyrir það
fengu menn fiska í þeim báðum, en það byrjaði að rigna
síðasta daginn og er nokkuð ljóst að þeir sem eiga daga á Jöklusvæðinu
á næstu dögum gætu verið í bingói.

                     
                   Hlussubleikja 58cm úr Kaldá á Skrögg eins og sést á myndinni

Þetta byrjaði frekar vel og voru komnir 13 laxar eftir fyrstu tvær vaktirnar.
næstu tvo daga báru menn svo á sig sólarolíu og tönuð sig í drasl
í 20 stiga hita og frábæru veðri (bara ekki veiðiveðri, en svona er nú veiðin)

                   
                                             Flottir Laxar úr Laxá síðasta morguninn
                                     hjá mokveiðikonunni Gunnu og vinkono hennar


Laxá tók kipp síðasta morguninn eftir rigningar um nóttina
fengust tveir þar fyrir hádegi og var talsvert líf.

                   
                                          Baukurinn með lax úr Kaldá tekinn á Skrögg

        
                      Morgan með lax úr kaldá á skrögg sem var að virka svona helv.. vel

Stórir laxar sáust í öllum ánum og voru menn sammála um að það væru 
fiskar um og yfir 100 cm í bæði Laxá og Fögruhlíðará, Kaldá er svo 
með nokkra svoleiðis hér og þar um sitt svæði.

                 
                               Magnum44 með 81cm lax úr Fögruhlíðará á Kolskegg

Glæsileg aðstaða er á svæðinu og með flottari veiðihúsum sem
við strákarnir höfum farið í, hlökkum til að fara þarna á næsta ári
og þá verður vonandi Jökla ekki komin á yfirfall.

Sumir voru duglegri en aðrir í drykkjunni en án nokkurns vafa fóru
þeir bræður Magnum,Morgan og Baukurinn með sigur af hólmi með úthald hvað það varðar
(þeir sváfu reyndar allir í sólarhring eftir að þeir komu heim)

Myndir frá öllum meðlimum eru að koma hægt og rólega inn á
síðuna og svo er myndbandið þegar 85 cm Kaldárlaxinn var tekinn
upp á brúnni í vinslu.
Flettingar í dag: 66
Gestir í dag: 36
Flettingar í gær: 608
Gestir í gær: 146
Samtals flettingar: 806772
Samtals gestir: 174244
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 03:05:03