01.08.2010 19:44

Menn mættir í hlíðina

mokveiðimenn byrjuðu núna kl 16:00 í Jöklu og var spenningurinn ægilegur og urðu einhverjir að legga á stað í gær en ske kynni að einhverjar stangir hefðu losnað í morgum..

Ekket hefur heyrst ef þeim enn sem komið er en við munum koma með fréttir um leið og eitthvað bítur á

Nú þegar tvær vaktir eru búnar eru komnir 15 laxar á land og nokkrar vænar bleikjur. Ekkert er hægt að veiða í sjálfri Jöklu vegna þess að hún er kominn á yfirfall og er eins og stórfljót á að líta.. Flestir fiskar eru komnir upp úr Köldukvísl eða 12 stk..

Eftir að menn voru búnir að éta í gærkvedi tók stíf drykkja langt fram á nótt og þótti nokkrum um og of á drykkjarþoli norðan manna..

Eitthvað er þetta að glæðna því að núna eru komnir rúmir 20 fiskar á land og einn tæpur 90 cm sem Sævar nokkur Hafsteinsson reif uppúr happahylnum..

Lítið sem ekkert samband er við þessa menn og munum við setja inn nýjar fréttir um leið og þeir koma í samband..



Flettingar í dag: 60
Gestir í dag: 32
Flettingar í gær: 608
Gestir í gær: 146
Samtals flettingar: 806766
Samtals gestir: 174240
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 03:02:30