30.07.2010 13:10

Húseyjarkvísl 117 stk


Hollið sem lauk veiðum á hádegi 30 júlí endaði í 16 löxum
allt upp í 93.cm höfðingja.

Húseyjarkvíslinn er því komin í 117 laxa og er það helmingi meira en á
sama tíma og í fyrra.

Hollið var nú ekki með slæman leiðsögumann meðfæris
en einn meðlimur Mokveiðifélagsins (Morgan) varð fyrir valinu og 
er það ávísun á nokkuð góða veiði hlýtur að vera emoticon 


   
                                                Kiddi með 90cm lax í laxhyl

Þessi veiðimaður hafði aldrei fengið stærri fisk en um 6 pund og var
að sjálfsögðu í skýjunum með árangurinn.

       
                                             Maggi með flottan 80cm lax úr Laxhyl

Veiðiaðstæður voru nú ekki uppá það besta en logn og 17 til 20¨gráður
með sól inn á milli.

Smálaxinn er farinn að hellast inn og voru strákarnir að fá smálax
í bland við fiska í kring um 80cm já og vel yfir það.

Næstu dagar geta orðið mjög skemmtilegir þegar sjóbirtingurinn fer að 
sýna sig meira í bland við laxinn.

Nú er stutt í að Mokveiðimenn leggji land undir fót og fari
á Jöklusvæðið.

Strákarnir eru að sjálfsögðu búnir að koma við hjá Stefáni í Kröflu http://www.krafla.is/ og nú er Iðan,Kolskeggurinn,rauður Elliði
og margt fleyra komið á þyngdar túpur, og er Rauður Elliði vægast
sagt glæsilegur.

Einnig komu strákarnir við hjá honum Viðari í Gallerí flugur eða
Litla Flugan http://galleriflugur.is/ og náður sér í króka og fluguhnýtingarefni (til að geta hnýtt nokkur eintök af Mokveiðiflugunni, einnig lét Viðar strákana hafa
nokkrar leyniflugur.

 
Hjá Viðari er landsins fottasta safn fluguhnýtingarefna og Krókar í öllum stærðum og gerðum, og ekki skemmir verðið fyrir, sjálfsagt hvergi ódýrara að kaupa sér tvíkrækjur og þríkrækjur aftan í túpurnar.

Hluti mokveiðimanna er núna á veiðum við Iðu og segjum við
fréttir af þeim um leið og þær berast.

                     
                                       Iðan og Stóra laxá í öllu sínu veldi

Logi Sveins eða Eldurinn eins og hann er kallaður verður vonandi
jafn öflugur og í síðasta holli á Iðunni en það fékk hann 3 laxa á Kröfluna Eldinn
sem er mjög viðeigandi, Smiðurinn fékk svo einn á Rauða kröflu.

Morgan er ekki eini félagsmeðlimur sem hefur verið að gæda
síðustu daga en Doktorinn og frú eru einmitt núna að gæda fyrir
austan á Jöklusvæðinu.

                 

Síðustu fréttir af Doktornum eru þær að Ítalin sem hann er að gæda
var búinn að setja í 3 laxa á Sipp sem er íslenska orðið yfir Hitch og
landa einum 81 cm laxi.
Flettingar í dag: 60
Gestir í dag: 32
Flettingar í gær: 608
Gestir í gær: 146
Samtals flettingar: 806766
Samtals gestir: 174240
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 03:02:30