08.07.2010 09:31

Húseyjarkvísl 3-6 júlí

Þá er komin loka tala á fyrsta laxveiðitúr Mokveiðimanna 14 laxar
og tveir sjóbirtinga,. 4 smálaxar og 10 tveggja ára fiskar.

Þetta byrjaði rólega og voru komnir tveir laxar á land eftir fyrstu vakt.

Var það Doktorinn sem fékk fyrsta fiskinn þetta skiptið og Morgan
fylgdi honum fast á eftir með að ná í fisk í fossinum sem var
ævintýri eins og alltaf þegar menn fá lax í fossinum.

        

        

        

                      
                                              Falleg 84 cm hryggna á kolskegg

 
Doktorinn með þann fyrsta 80cm  á sunray               Killerinn með 76cm sjóara á Kolskegg

 
Löggan með 64cm á Iðuna 1"                                   Rock með 82cm á Iðuna 1"

 
Killerinn með 78cm á Iðuna nr16                              Morgan með 84cm á Kolskegg 1"

 
Magnum44 með 82cm á Iðuna 1/2"                          Baukurinn með 83cm á Iðuna 1"


Ekki þarf að fara mörgum orðum um þessa ferð og varla eru til
nógu mörg lýsingarorð til að lýsa henni.

Kolskeggur var nú í miklu uppáhaldi en Iðan fór gjörsamlega á kostum.

Það sem vakti athygli okkar var að smálaxinn var einnig farin að
láta sjá sig sem veit vonandi á gott.
Einnig veiddust tveir flottir sjóbirtingar og ekki skemmir það að
hann sé nú líka snemma á ferðinni.

Mokveiðifélagið tvöfaldaði næstum aflan í Húseyjarkvísl og er hún
núna komin vel yfir 30 laxa.

Ekki kom nú 20pundarinn á land í þetta skiptið þó svo að Rock
hafi verið nálægt því er hann missti svaka bolta í Togga, sá
hefur verið mjög nálægt 100cm.

Ekki er þó hægt að kvarta yfir stærðinn og voru þrír stærstu
fiskarnir 87cm 88cm og 89cm

                            
                                            Magnum með 89cm á Kolskegg

                           
                                            Baukurinn með 88cm á Iðuna 1/2"

                             
                                                Morgan með 87cm á Iðuna 1"


Eins og sést á myndunum þá er uppistaðan í aflanum hrygnur
og ljóst að kvenkyn laxsins eru álýka brjálaðar í Mokveiðifélagana
eins og íslenska kvennþjóðin emoticon

Þar með lýkur fyrsta laxveiðitúr Mokveiðifélagsins og ekki er hægt
að fara fram á betri byrjun sumarsins.

Fullt af myndum úr ferðinn eru komnar í myndaalbúm.

Flettingar í dag: 394
Gestir í dag: 59
Flettingar í gær: 720
Gestir í gær: 111
Samtals flettingar: 890834
Samtals gestir: 188560
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 14:07:26