29.06.2010 15:48
Húseyjarkvísl opnun
Húseyjarkvíslinn var opnuð á Föstudaginn og veiddust 7 laxar, allir vænir
tveggja ára laxar.
Valli var svo að byrja í gær og var ekki lengi að setja í og landa
einum 97 cm í laxhyl.
Valli og félagar eru nú ekki búnir að stunda veiðina stíft og hafa farið
yfir þetta í rólegheitum.
Að sögn vall er fiskur komin um alla á og talsvert af honum, þeir
félagar voru komnir með einhverja 4 fiska þrátt fyrir 20° hita og logn
sem eru einar verstu aðstæður sem hægt er að fá í Húseyjarkvísl
þ.e.a.s lognið aðalega.
Kvíslin er þá kominn í einhverja 13 laxa sem þykir mjög gott svona snemma
og þó sérstaklega þar sem Mokveiðifélagið á eftir að fara og veiða.
Valli með annan flottan
Nú eru aðeins 4 dagar í að Mokveiðifélagið leggi land undir fót og fari
á heimaslóðir, spenningurinn er að verða óbærilegur.
Skrifað af Veiðifélagið
Flettingar í dag: 50
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 608
Gestir í gær: 146
Samtals flettingar: 806756
Samtals gestir: 174235
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 02:39:12

