06.06.2010 22:00
Stórlaxa dráp

Það fer nú ekki milli mála að laxveiðin er byrjuð og hófst hún í gær í Norðurá og Blöndu og var byrjunin bara hin besta... En það sem fór kannski aðeins fyrir brjóstið á manni var að sjá alla þessa laxa drepna í Blöndu og voru þetta hinir vænstu fiskar. Einn 20 punda sleit sig lausan sem betur fer..
Bjarni með 80cm og honum var sleppt
Annað var upp á teningum hjá stjórn SVFR sem opnaði Norðurá en þar var öllum fiski sleppt nema þá einum sem kokgleypti og blæddi mikið úr og var drepinn.. Þetta hefur verið mikið í umræðunni síðustu daga en það virðist ekki miklum árangri skila í sumum ám... En ljóst er það að þeir fiskar sem drepnir voru í Blöndu eiga ekki sjéns að gefa af sér stórlaxa í framtíðinni...

Þessi er STÓR og honum var sleppt eða það sögðu þeir.... :)
Skrifað af Veiðifélagið
Flettingar í dag: 50
Gestir í dag: 27
Flettingar í gær: 608
Gestir í gær: 146
Samtals flettingar: 806756
Samtals gestir: 174235
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 02:39:12

