Færslur: 2010 Júlí

30.07.2010 13:10

Húseyjarkvísl 117 stk


Hollið sem lauk veiðum á hádegi 30 júlí endaði í 16 löxum
allt upp í 93.cm höfðingja.

Húseyjarkvíslinn er því komin í 117 laxa og er það helmingi meira en á
sama tíma og í fyrra.

Hollið var nú ekki með slæman leiðsögumann meðfæris
en einn meðlimur Mokveiðifélagsins (Morgan) varð fyrir valinu og 
er það ávísun á nokkuð góða veiði hlýtur að vera emoticon 


   
                                                Kiddi með 90cm lax í laxhyl

Þessi veiðimaður hafði aldrei fengið stærri fisk en um 6 pund og var
að sjálfsögðu í skýjunum með árangurinn.

       
                                             Maggi með flottan 80cm lax úr Laxhyl

Veiðiaðstæður voru nú ekki uppá það besta en logn og 17 til 20¨gráður
með sól inn á milli.

Smálaxinn er farinn að hellast inn og voru strákarnir að fá smálax
í bland við fiska í kring um 80cm já og vel yfir það.

Næstu dagar geta orðið mjög skemmtilegir þegar sjóbirtingurinn fer að 
sýna sig meira í bland við laxinn.

Nú er stutt í að Mokveiðimenn leggji land undir fót og fari
á Jöklusvæðið.

Strákarnir eru að sjálfsögðu búnir að koma við hjá Stefáni í Kröflu http://www.krafla.is/ og nú er Iðan,Kolskeggurinn,rauður Elliði
og margt fleyra komið á þyngdar túpur, og er Rauður Elliði vægast
sagt glæsilegur.

Einnig komu strákarnir við hjá honum Viðari í Gallerí flugur eða
Litla Flugan http://galleriflugur.is/ og náður sér í króka og fluguhnýtingarefni (til að geta hnýtt nokkur eintök af Mokveiðiflugunni, einnig lét Viðar strákana hafa
nokkrar leyniflugur.

 
Hjá Viðari er landsins fottasta safn fluguhnýtingarefna og Krókar í öllum stærðum og gerðum, og ekki skemmir verðið fyrir, sjálfsagt hvergi ódýrara að kaupa sér tvíkrækjur og þríkrækjur aftan í túpurnar.

Hluti mokveiðimanna er núna á veiðum við Iðu og segjum við
fréttir af þeim um leið og þær berast.

                     
                                       Iðan og Stóra laxá í öllu sínu veldi

Logi Sveins eða Eldurinn eins og hann er kallaður verður vonandi
jafn öflugur og í síðasta holli á Iðunni en það fékk hann 3 laxa á Kröfluna Eldinn
sem er mjög viðeigandi, Smiðurinn fékk svo einn á Rauða kröflu.

Morgan er ekki eini félagsmeðlimur sem hefur verið að gæda
síðustu daga en Doktorinn og frú eru einmitt núna að gæda fyrir
austan á Jöklusvæðinu.

                 

Síðustu fréttir af Doktornum eru þær að Ítalin sem hann er að gæda
var búinn að setja í 3 laxa á Sipp sem er íslenska orðið yfir Hitch og
landa einum 81 cm laxi.

19.07.2010 20:31

               '>

18.07.2010 19:34

Margrét Árnadóttir


Margrét Árnadóttir dóttir Doktorsins á leið í atvinnumennsku??

       
                   Nei þú verður að tala við hann pabba minn hann er umboðsmaðurinn minn


Núna um helgina fór dóttir Doktorsins á kostum þegar liðið hennar
vann símamótið í Kópavoginum.

Ekki hefur enn náðst á Doktornum en símin hjá honum er
víst búinn að vera rauðglóandi síðan á sunnudaginn og eru það
helst umboðsmenn héðan og það af úr heiminum að bjóða þeim
gull og græna skóga.

                         
                                          Margrét 2007 áður en hún varð heimsfræg á Íslandi

Miklir fjármuniremoticon  munu víst vera í spilinu og hefur það heyrst að Doktorinn
séu hættur að vinna og ætli að láta dóttirina sjá um sig í framtíðinni
svo hann geti betur einbeitt sér að veiðinni.

Margrét er ekki bara svona líka helv... góð í fótbolta heldur er hún
alveg þræl fiskin eins og mamma sín emoticon  

Doktorinn getur þó þakkað fyrir að Margrét sé meira fyrir fótboltan
heldur en veiðina því ef þær mæðgur væru alltaf báðar með honum
að veiða er nokkuð ljóst að hann kæmist nú ekki mikið að emoticon

Í viðtali við Margréti í morgunblaðinu í dag sagðist hún núna loksins skilja það hvernig væri að vera í sigurliðinu en hún hefur verið svo óheppin að báðir foreldrar
hennar eru Liverpoolaðdáendur og hefur verið reynt í
gegnum árin að telja henni trú um að það sé ekki alltaf spurningin
um að vinna.... heldur að vera með... yea right emoticon Glory Glory

Til hamingju Margrét og KA stelpur þið eru flottastaremoticon

17.07.2010 11:23

3 laxar hjúkkkkiddd


Jæja þetta hafðist hjá strákunum í gær 3 laxar á land.

Allt byrjaði þetta nú frekar rólega og áinn frekar vatnslítil.

Rock byrjaði þetta með að ná einum 68cm uppúr kl 20:00

                     
                                          Rock með 68cm hæng á gula kröflu


                     
                                        Koddí sleik... alalalalallala emoticon  kolskeggur 1"

Magnum náði svo einum 64cm á kolskegg og var þetta allt
farið að líta aðeins betur út.


              
                                                  Flottir emoticon Aftur gul Krafla 

Rock endanlega reddaði þessu svo þegar hann setti svo í
þennan flotta 61cm lax.

Nú eru menn orðnir vel heitir fyrir Jöklu, en það er næsta bókaða stopp
Mokveiðimanna.

þangað til þá bara eins og segir í kvæðinu

"Bara rjómi og humar og smjör"


16.07.2010 12:45

Live Lax lax lax og aftur lax


Rock og Killerinn eru mættir í Laxá á Skaga.

                        
                                   Það er ræs... hann er að stökkva um alla á

Þeir félagar dróu efra svæðið sem eins og þeir orðuðu "þetta rennur varla og
maður á bágt með að trúa því að lax geti gengið svona langt uppeftir núna."

Magnum44 eða "Logi Geirs" eins og menn eru farnir að kalla hann
tók sé frí í dag til þetta að "gæda þá" ætlar bara að taka myndir og svona
ekkert að veiðaemoticon  tók ekki einu sinni stöngina sína með....
jaa ekki nema mesta lagi eina þeirraemoticon

                     
                          Logi Geirs má ekki sjá markið þá tekur hann skotið
                          Sumir mega ekki sjá vatn þá eru þeir komnir út í emoticon


Það er helst að frétta af fyrri vaktinni að Rock er að sjálfsögðu
búinn að rífa upp einn lax í vatnsleysinu.


                          
                               Kolskeggur virkar ekki bara á þessa stóru


Reyndar ekki nema 10cm en hann var víst mjög sprækur
og erum menn að skjóta á c.a. 20.pund miðað við hversu
þykkur hann varemoticon

Killerinn og Rock eru þó mjög bjartsýnir fyrir komandi átök
eftir hádegi og nokkuð ljóst er að það verður brjólað að gera
hjá Magnum að taka myndir.

Fréttir af þeim félögum verða settar inn um leið og eitthvað heyrist.


16:00
5.laxar sjást í fyrsta hyl

16:30
Ekkert....... engin hreyfing....

16:45
Rock dettur í ánna.... smá blautur og drullugur
Fékk ekki aðstoð frá Loga Geirs né killernum.. gáfu honum víst bara
augnaráð og vildu meina að hann hafi fælt fiskin

16:55
Magnum44 rennir í hylinn.....emoticon 

                        
Bíddu bíddu.......                                                                               16:55

er þetta ekki maðurinn sem ætlaði að gæda og taka myndir???emoticon
Já og keyra en gat það því miður ekki þar sem undirstaða morgunmatarins
hjá honum var Víking Gylturemoticon

17:15
Ekkert emoticon
Það er nokkuð ljóst að Morgan er ekki meðemoticon

Jæja það hlýtur þá að fara koma fiskur.... annars þarf að endurskoða
nafnið á veiðifélaginuemoticon 

17:45

Bara Bing bara b..........................ekki neitt emoticon 

18:00

4 tímar til stefnu menn verða að fara að redda þessu....
það er ekki hægt að fara senda nýbakaðan pabban norður til að redda þessu.

18:05
Nýjustu fréttir eru að Baukurinn er á leiðinni........jæja ef hann reddar þessu
ekki þá þarf að hringja í Doktorinn....emoticon

18:15
Nei Baukurinn hætti við...... ætlar ekki að láta bendla sig við svona aflabrögðemoticon

18:30
Jæja það er eitthvað að gerast......



Nei nei það er ekki rassgat að gerast....
Killerinn er lagstur í brekkuna...

19:25
jæja enn ekkert að gerast.emoticon
Baukurinn fór fram á að ef Mokveiðifélagið núllar þurfa þeir sem
eru í veiðiferðinni að greiða einhverskonar sekt...emoticon
ekki er búið að ákveða hvort um peningasekt eða áfengissekt
verður um að ræða.. en Baukurinn lagði til að hver maður skildi
leggja eina Captain Morgan flösku í flöskusjóð Mokveiðifélagsins.

19:30
Ég hef nú samt fulla trú á að Rock setji nú í einn fyrir 22:00

Tippa á svona uppúr Kl 20:00 emoticon

20:00

Yeeeeeesssssssssssssssss emoticon

Rock is in da house

Staðsetning: Vonarhylur (á vel við þessum aðstæðum)

                        
                                         67cm glæsilegur hængur á Gula Kröflu
                                                  

Menn eru að redda sé fyrir horn.... já það er pressa að vera í Mokveiðifélaginu.

Nú er bara að sjá hvort Killerinn ja nú eða jafnvel Logi Geirs setji
í eitthvað.

Rock er komin í Koníak og Kampavín og syngur bara "Rjómi og humar og smjör"

20:30

Bara bing bara bong.........

Magnum44 er búinn að setja í hannemoticon 

Nú er maður farinn að kannast við félagsmenn

                        

Flottur smálax sem tók koskegginn hvað annað..... og í sama hyl
Vonarhyl.....

þá er það bara Killerinn eftir já og Magnum junior..

21:00

Klukkutími eftir emoticon

21:50

Roooooock emoticon


                      
                                                  61cm lax á gula kröflu
                                                      

Þorsteinn Fríman Guðmundsson er endanlega að redda þessu......

61cm lax á Gula kröflu

Lokatölur 3 laxar og slatti af sigurliðum

fleyri myndir eru komnar í myndaalbúm


15.07.2010 21:58

Laxá í Laxárdal Skagafirði



Laxá í Laxárdal Skagafirði.  Þangað eru nokkrir meðlimir félagsins að fara í fyrramálið..  Þar ætlum við að opna hana eftir 5-6 ára lokun á ánni..  Eitthvað var veitt til prufu síðasta ár og reyndist það mjög vel og komu nokkrir á land og sumir hverjir stórir.. 

              

Einn félaginn kemst því miður ekki með í þessa ferð þar sem konan bannaði honum það, því að hann eignaðist son í fyrradag............. Nei bara djók auðvitað tekur hann fjölskylduna fram yfir vinina eins og sannir vinir gera..  Þetta er hann Sævar og óskum við þeim innilega til hamingju með soninn..

             

10.07.2010 17:17

Live from Elliðaá

Nú í þessum töluðu orðum eru nokkrir meðlimir félagsins við veiðar í Elliðaám enn sem komið er er enginn lax kominn á land en vonast er til að það hlaupi á snærið á flóðinu um 19.00 ..  Bruggðu menn á það ráð að kaupa sér leiðsögumann og er það enginn annar en pirraði tvíburinn Gunnar Helgason..

Við komum með fréttir um leið og eitthvað ske

18:07.

Hörður búinn að ná einum 72cm við mikinn fögnuð áhorfanda.
Gunni rétt missti einn eftir landa viðureign þegar Hörður var að reyna að landa..

                   

        

19:22.

Hörður setjur í annan og nær að landahonum enda öryggið uppmála.
Gunna tekst með miklum naumundum að missa annan og nú er farið að þykkna í greyinu.




20:30

Hörður er með hann á í fossinum

   

Eftir 45 mín átök náðist að landa vænum 70cm stórlaxi..  Þurfti Gunni að hafa sig allan við og verst þóttihonum að landa öllum þessum fiskum eftir að Hörður missti laxinn hans Gunna í Húseyjarkvísl þannig að hann fór áður en Gunni gat handfjattlað hann..  Enn og aftur sanna flugurnar hjá krafla.is sig og komu allir fiskarnar á Kröflu (eldinn og Orange ) Ef ég man rétt..

    

09.07.2010 22:23

                '>

08.07.2010 09:31

Húseyjarkvísl 3-6 júlí

Þá er komin loka tala á fyrsta laxveiðitúr Mokveiðimanna 14 laxar
og tveir sjóbirtinga,. 4 smálaxar og 10 tveggja ára fiskar.

Þetta byrjaði rólega og voru komnir tveir laxar á land eftir fyrstu vakt.

Var það Doktorinn sem fékk fyrsta fiskinn þetta skiptið og Morgan
fylgdi honum fast á eftir með að ná í fisk í fossinum sem var
ævintýri eins og alltaf þegar menn fá lax í fossinum.

        

        

        

                      
                                              Falleg 84 cm hryggna á kolskegg

 
Doktorinn með þann fyrsta 80cm  á sunray               Killerinn með 76cm sjóara á Kolskegg

 
Löggan með 64cm á Iðuna 1"                                   Rock með 82cm á Iðuna 1"

 
Killerinn með 78cm á Iðuna nr16                              Morgan með 84cm á Kolskegg 1"

 
Magnum44 með 82cm á Iðuna 1/2"                          Baukurinn með 83cm á Iðuna 1"


Ekki þarf að fara mörgum orðum um þessa ferð og varla eru til
nógu mörg lýsingarorð til að lýsa henni.

Kolskeggur var nú í miklu uppáhaldi en Iðan fór gjörsamlega á kostum.

Það sem vakti athygli okkar var að smálaxinn var einnig farin að
láta sjá sig sem veit vonandi á gott.
Einnig veiddust tveir flottir sjóbirtingar og ekki skemmir það að
hann sé nú líka snemma á ferðinni.

Mokveiðifélagið tvöfaldaði næstum aflan í Húseyjarkvísl og er hún
núna komin vel yfir 30 laxa.

Ekki kom nú 20pundarinn á land í þetta skiptið þó svo að Rock
hafi verið nálægt því er hann missti svaka bolta í Togga, sá
hefur verið mjög nálægt 100cm.

Ekki er þó hægt að kvarta yfir stærðinn og voru þrír stærstu
fiskarnir 87cm 88cm og 89cm

                            
                                            Magnum með 89cm á Kolskegg

                           
                                            Baukurinn með 88cm á Iðuna 1/2"

                             
                                                Morgan með 87cm á Iðuna 1"


Eins og sést á myndunum þá er uppistaðan í aflanum hrygnur
og ljóst að kvenkyn laxsins eru álýka brjálaðar í Mokveiðifélagana
eins og íslenska kvennþjóðin emoticon

Þar með lýkur fyrsta laxveiðitúr Mokveiðifélagsins og ekki er hægt
að fara fram á betri byrjun sumarsins.

Fullt af myndum úr ferðinn eru komnar í myndaalbúm.

05.07.2010 23:33

Húseyjarkvísl

Hérna koma nokkrar myndir inn af þeim nokkrum löxum sem komnir eru á land..

04.07.2010 23:18

Veiðin hálfnuð

Nú þegar veiðin hjá okkur er hálfnuð þá eru komnir á land einir 10 laxar og 2 sjóbirtingar

Þannig að nú er pressa á að hollið endi í 20 löxum......

Myndir verða settar inn á hádegi mánudag.

03.07.2010 11:25

Veiðin hefst..


Núna kl 16:00 stundvíslega þá munu Mokveiðimenn halda niður á bakka Húseyjakvísl við annan mann og hefja laxveiðina formlega...  Það er búinn að vera mikill spenningur meðal meðlima og menn að leggja undir hver fái þann stæðsta og bruggðum við á það ráð að bjóða með okkur löggildum mælinga manni til að enginn ágreningur komi nú upp..  Er þessi maður útpældur í að mæla rétt eftir að þeir bræður hófu mikið stríð hvor mundi nú hafa betur í laxveiðinni síðast liðna sumar...

Við munum setja inn fréttir um leið og þær berast....


Nú er bara spurning hvort að 5m band dugar..

    Flettingar í dag: 60
    Gestir í dag: 32
    Flettingar í gær: 608
    Gestir í gær: 146
    Samtals flettingar: 806766
    Samtals gestir: 174240
    Tölur uppfærðar: 8.2.2012 03:02:30