Færslur: 2010 Júní
29.06.2010 15:48
Húseyjarkvísl opnun
Húseyjarkvíslinn var opnuð á Föstudaginn og veiddust 7 laxar, allir vænir
tveggja ára laxar.
Valli var svo að byrja í gær og var ekki lengi að setja í og landa
einum 97 cm í laxhyl.
Valli og félagar eru nú ekki búnir að stunda veiðina stíft og hafa farið
yfir þetta í rólegheitum.
Að sögn vall er fiskur komin um alla á og talsvert af honum, þeir
félagar voru komnir með einhverja 4 fiska þrátt fyrir 20° hita og logn
sem eru einar verstu aðstæður sem hægt er að fá í Húseyjarkvísl
þ.e.a.s lognið aðalega.
Kvíslin er þá kominn í einhverja 13 laxa sem þykir mjög gott svona snemma
og þó sérstaklega þar sem Mokveiðifélagið á eftir að fara og veiða.
Valli með annan flottan
Nú eru aðeins 4 dagar í að Mokveiðifélagið leggi land undir fót og fari
á heimaslóðir, spenningurinn er að verða óbærilegur.
25.06.2010 13:42
Pant vera svona hress 80ára
Mokveiðifélagið hefur ákveðið að gera Jón Bónda í Jökuldalnum
að heiðursfélaga Mokveiðifélagsins.
Jón er eins og margir vita tengda pabbi Doktorsins, og er svona einn af þessum af gamla skólanum og er sjálfsagt einn af öflugri veiðimönnum
sem maður hefur rekist á.
Ekki er að sjá að Jón sé að verða 80 ára í haust og er hann eins og
unglamb um öll fjöll og firnindi í Jökuldalnum.
Jón verður líklega eitthvað í för með Mokveiðifélaginu fyrir austan
þegar félagið verður í Jöklu í sumar, en Jónshylur í Jöklu er nú einmitt
skýrður eftir þessum mikla manni
Glæsilegur hylur Jónshylur í Jöklu
Jón er alveg svakaleg skytta og lætur sig nú ekki muna um að liggja
fyrir tófu í einhverja klukkutíma.
Flottur
Rebbi dauður
Nú á dögunum fór Jón og skaut sel sem var búinn að vera
gera mönnum lífið leitt í ós fögruhlíðarár fyrir austan.
Rambó hvað??
Guðrún dóttir Jóns og kona Doktorsins verður líklega jafn öflug
og pabbi sinn í framtíðinni og nokkuð ljóst þykir að síðasta sumar
þegar Doktorinn var heima við og sá um heimilisstörfin meðan Guðrún
var við veiðar er bara byrjuninn
Vonandi fáum við nú samt að hafa Doktorinn með okkur
áfram í Húseyjarkvíslarhollunum.

Jón að fara yfir undirstöðuatriðin með Guðrúnu
Já eins og segir Pant vera svona þegar maður er að detta í 80 ára aldurinn
20.06.2010 20:42
Er eitthvað að ske ?
Nú er heldur betur að draga til tíðina í laxveiðinni á Íslandi um þessar mundir.. Fiskur í öllum ám og sumir hverjir stórir og þrælflottir fiskar..

Lax úr laxá í Aðaldal 2009..
Fyrsta laxinum sem landað var í Laxá í Aðaldal í morgun var 22 punda hængur og í kjölfarið fylgdi 20 punda hrygna. Er þetta flottar fréttir og sína það að stórlaxinn er kominn í Aðaldalinn og það mun vera líf þegar Mokveiðifélagið mætir á svæðið um miðjan ágúst.. Er ljóst að skyldu slepping er að skila sér í auknum stórlaxi..
Hann tók eina 5 í dag
Bjarnfreðarson opnaði Elliðaárnar í morgum eins og öll þjóðin veit og sleit upp eitthvað af laxi sennilega eina 3-4 og er það góð byrjum á veiðimennsku hjá honum Jóni.. Óskum við honum til hamingju með veiðina..

Rock með hann í Húseyjarkvísl
Eins hefur Kjarrá, Blanda, Norðurá, Haffjarðará og Húseyjarkvísl eru farinn að gefa mikið af fiski.. 2 laxar eru komnir á land í Húseyjarkvísl og er það flottbyrjum þar sem hún er síðsumars á og fer yfir leitt ekki að gefa fisk fyrren í Júlí.. Voru þetta vænir fiskar eða eitthvað um 80cm en það kemur eitthvað nánar um það þegar líður á..

Gestur með 1 tæpa 80cm og var honum vitanlega sleppt aftur..
Séra G að setja í þá.
11.06.2010 11:41
Doktorinn er komin Austur
Doktorinn og fjölskylda eru farin Austur að draga björg í bú.

Guðrún í fyrra þegar var farið Austur
Doktorinn gat ekki beðið eftir að komast í veiði sem er ekki nema von
þar sem það eru enn einhverjir 20 dagar í veiðina í Húseyjarkvísl.
Net voru lögð í vötnin í gær og í dag á að reyna eitthvað á stöng.
Myndir og fréttir af Doktornum og fjölsk. verða birtar um leið og þær berast.
Menn eru alveg að verða friðlausir að komast í veiði og hérna er flott myndskeið
sem ofumljósmyndarinn Þorsteinn F Guðmundsson tók á bökkum Hólsár í Fyrra.

Skipt um flugu og hvað annað en Kolskegg

Bara bing bara búm




Veiðin er rétt að bresta á guði sé lof að Doktorinn sé Geðlæknir
og þessa dagana er dælt í mannskapinn róandi og klukkutíma símatími við Doktorinn á dag er að bjarga því sem bjargað verður.
En HM er líka að byrja

"Dómari!! ég er svolítið slæmur í auganu" held ég að Rooney sé að segja
Hann er allavega mjög kurteis að sjá eins og alltaf
09.06.2010 20:36
Ákall frá veiðimálastofnun
Sigurður Guðjónsson forstjóri veiðimálastofnunar
08.06.2010 22:00
Enga stórlaxa í Íslenskum ám 2020
þessa dagana.
Mokveiðifélagið vill biðjast afsökunar á því að birta mynd sem Ingi Freyr Ágústsson
á og tók um dagin við bakka Blöndu af fallegum stórlöxum.
Það hvarlaði ekki að okkur að þetta væri mynd sem menn væru ekki
stoltir af, þar sem menn voru svo syngjandi glaðir eitthvað á myndinni.
En fyrir áhugasama er hægt að sjá myndina á veiðivefnum Lax-a.is
http://www.lax-a.is/islenska/frettir/helstu-frettir/nr/9956
Við sleppum stórlaxi......





Hressir og skemmtilegir stórlaxar
Stórlaxinn á myndinni var hin hressasti og synti sprækur
út í ánna strax að myndatöku lokinni.
ljóst er að hann muna ala af sé fullt af stórlöxum í framtíðinni.
Nokkuð ljóst er að þessi maður þarf að vera hobbiti til að þetta sé
smálax ???
Frábært start á sumrinu endilega höldum þessu áfram.....
Engan stórlaxa í Íslenskum ám árið 2020....... frábært
06.06.2010 22:00
Stórlaxa dráp

Það fer nú ekki milli mála að laxveiðin er byrjuð og hófst hún í gær í Norðurá og Blöndu og var byrjunin bara hin besta... En það sem fór kannski aðeins fyrir brjóstið á manni var að sjá alla þessa laxa drepna í Blöndu og voru þetta hinir vænstu fiskar. Einn 20 punda sleit sig lausan sem betur fer..
Bjarni með 80cm og honum var sleppt
Annað var upp á teningum hjá stjórn SVFR sem opnaði Norðurá en þar var öllum fiski sleppt nema þá einum sem kokgleypti og blæddi mikið úr og var drepinn.. Þetta hefur verið mikið í umræðunni síðustu daga en það virðist ekki miklum árangri skila í sumum ám... En ljóst er það að þeir fiskar sem drepnir voru í Blöndu eiga ekki sjéns að gefa af sér stórlaxa í framtíðinni...

Þessi er STÓR og honum var sleppt eða það sögðu þeir.... :)
05.06.2010 22:47
Menn að rífa hann upp
Jói Máfur lætur sig ekki vanta á strandveiðarnar og fer út á hverjum degi kl 05:00 og tekur sín 600kg.. Enda er kvótinn að vera búinn þarna fyrir norðan..
En fréttst hefur að Jói hafi verið að landa á Suðureyri nú í vikunni og ekkert hefur heyrst af honum í nokkra daga og féttir herma að hann hafi verið tekinn við að landa framhjá þar á bæ... Ekki vitum við hvað sé til í því en haft er eftir Árna syni hans að Jói sé til allslíklegur.... Óskum við Jóa alls góðs í baráttunni við þorskinn ..
Horft yfir í Skagafjörð...............Eða út Eyjarfjörð
- 1




