Færslur: 2010 Maí
25.05.2010 22:42
Stórfiskar

Tveir flottir Iðulaxar fyrir allt mörgum árum 20 eða svo

Iðu"lax" árið 2007
Síðasti stórlaxinn???????
Tekur stórlaxinn kipp í ár eða er hann hreinlega að syngja sitt síðasta??
Mikið umræða hefur verið um hnignun stórlaxa í íslenskum veiðiám og þurfa
líklega allra hörðustu veiðimenn sem jafnvel fyrirlíta þá sem fara til veiðar
og sleppa fiskum sínum að viðurkenna að eitthvað þarf að gera.
Þegar veiðimaður fer til veiða er fátt meira spennandi en það hvort
sá stóri bíti á....
Hversu skemmtilegt verður það ef maður getur ekki einu sinni haft þá
hugmynd aftarlega í kollinum einfaldlega vegna þess að hann er
ekki til staðar.
Veiðisnobb, veiðivitleysingar eru einungis brota brot þeirra orða sem
menn sem vilja sleppa stórlöxum verða fyrir er þeir stunda þá yðju.
Ekki er talið líklegt að stjórnvöld eða einhver önnur öfl ætli sér að bregðast
eitthvað við þessari fækkun stórlaxa þannig oftar sem áður er það undir
okkur veiðimönnum komið að bregðast við.
Virkar veiða og sleppa??
Ætla að vera stórorður og segja JÁ.... enginn spurning.
Við hjá Mokveiðifélaginu höfum nú verið nokkuð heppnir í gegnun
árinn að setja í og jafnvel landa þeim stóru.. þó svo að þessir "stærstu" sleppi
nú alltaf







Gleðin í augum manna leynir sér ekki þega búið er að landa þessum
stóra og líta menn oft á tíðum út eins og vistmenn á kleppi á þessum myndum.
Draumur allra veiðimanna er að landa þessum stóra og fátt sem toppar það
að ná þeim árangri nema þó helst að halda á stað í veiðiferð með
syni sínum eða dóttur og verða vitni af því þegar sá stóri kemur á færið
hjá þeim.
Vilja menn eiga það á samviskunni að geta ekki einu sinni sagt
"jæja ég reyndi þó"
Hlúum að stórlaxi og verðum vitni af því þegar börnin okkar og jafnvel
barnabörn setja í þann stóra.
Skrifað af Veiðifélagið
23.05.2010 22:13
Fyrsti Stór-lax sumarsins
Fyrsti STÓRLAX sumarsins veidist í Húseyjarkvísl 5 Júlí á seinnipartsvakt og var hann 98cm hængur.... Veiðistaður var Gullhylur og agnið Skröggur frá www.krafla.is .. Þetta er frétt sem mun verða á öllum miðlum 6 júlí...

Hörður með flottan hæng úr Húseyjarkvísl
Heldur rólegt er þessa stundina, menn eru ennþá að skipuleggja sumarið og er hringt í mann daglega og verið að bjóða hina og þessa á. En fram að því þarf maður að finna sér eitthvað til að líta í , s.s verður farið í egg í Drangey í vikunni rennt í skurðina í Blönduhlíðinni og annað sem hægt er að gera..

Hörður með flottan hæng úr Húseyjarkvísl
Heldur rólegt er þessa stundina, menn eru ennþá að skipuleggja sumarið og er hringt í mann daglega og verið að bjóða hina og þessa á. En fram að því þarf maður að finna sér eitthvað til að líta í , s.s verður farið í egg í Drangey í vikunni rennt í skurðina í Blönduhlíðinni og annað sem hægt er að gera..

Skrifað af Veiðifélagið
17.05.2010 21:45
Kastnámskeið
Mokveiðifélagið hélt nú á dögunum kastnámskeið á Reyðarfirði og er það liður í að kenna Reyðfirðingum að kasta flugu og teyja anga Mokveiðifélagsins austur á boginn.. Var námskeiðið vel sótt í allastaði og stóð mest allan laugardaginn... Farið var yfir grundvallar atriðinn í flugustöngum og búnað þeirra..

Efir námskeiðið var haldinn kvöldvaka þar sem nemendur fengu viðurkenningu ( þeir sem náðu ) .. Enduðum þá því að halda niður að tjörn og kasta þar, það vakti forvitni margra bæjarbúa enda hefur ekki verið fiskur í þessari tjörn í mörg ár..
Efir námskeiðið var haldinn kvöldvaka þar sem nemendur fengu viðurkenningu ( þeir sem náðu ) .. Enduðum þá því að halda niður að tjörn og kasta þar, það vakti forvitni margra bæjarbúa enda hefur ekki verið fiskur í þessari tjörn í mörg ár..
Skrifað af Veiðifélagið
13.05.2010 21:33
Hitt og þetta
Þá er okkar vetrarstarfi lokið að sinni hjá SVFR með árnefndarkvöldi í gærkveldi.. Síðasta opna-hús var síðastliðna Föstudagskvöld og var nokkuð margt um manninn þó ekki nóg og vantaði þar ýmiss þekkt andlit sem maður saknaði en sennilega hefur eitthvað gott verið í gangi annasstaðar.. Eitthvað hikstaði þetta allt saman og illa gekk að skipuleggja dagskrána en eftir smá brölt náðist að semja við Þröst Elliða að hafa smá kynningu á Jöklu og var þetta hin flottasta sýning .. Flottir vinningar voru í Happahylnum , Þröstur, SVFR, Vesturröst, Veiðiflugan og Krafla.is voru meðal þeirra sem gáfu vinninga og þökkum við þeim kærlega fyrir herlegheitin enda var þetta einn flottasti hylur frá upphafi..

Ný skemmtinefnd var kosinn og er hún sú sama þar sem enginn mótframboð komu.... Húrra fyrir því..

Nú býða menn eftir því að eitthvað farið að gerast í veiði og ætlum við að fara til veiða við fyrsta tækifæri


Ný skemmtinefnd var kosinn og er hún sú sama þar sem enginn mótframboð komu.... Húrra fyrir því..

Nú býða menn eftir því að eitthvað farið að gerast í veiði og ætlum við að fara til veiða við fyrsta tækifæri

Skrifað af Veiðifélagið
05.05.2010 22:39
Opið hús á Föstudaginn
Þá er komið að því að menn arka niður í sal SVFR og verða vitni af all svakalegu opnu-húsi nú næstkomandi föstudagskvöld og byrja herlegheitinn kl 20:30 að staðartíma... Takið kvöldið frá..
Dagskrá auglýst á morgum...

Dagskrá auglýst á morgum...

Skrifað af Veiðifélagið
- 1
Flettingar í dag: 394
Gestir í dag: 59
Flettingar í gær: 720
Gestir í gær: 111
Samtals flettingar: 890834
Samtals gestir: 188560
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 14:07:26

