Færslur: 2010 Apríl
24.04.2010 22:03
Hitt og þetta
Nú er verið að raða niður á sumarið og verðum við Kvíslinni í byrjum Júli, svo á að halda í Aðaldalinn (Nessvæðið) og þaðan sennilega í Jöklu og beint aftur norðu í Kvísl og aftur í Kvíslina... Svo verður að reyna að finna eitthvað þarna inn á milli..
Minnum menn á að síðasta opna-hús vetrarins er núna í byrjum Maí... Verður þetta eitt hið veglegasta og víni verður stillt í hófi.............................. eða ekki... Nei nei núna höfum við gaman.
Takið daginn frá................................................................................................................
21.04.2010 21:14
Strákarnir í "Með öngulinn í rassinum,,
Í gærkveldi var sýndur þriðji þáttur með þeim bræðrum " With a hook in the ass,, og þar mátti sjá frá bæran þátt þar sem þeir reyndu fyrir sér í Vatnsdalsánni frægu.. Gekk það líka svona ljómandi.. Svo mátti sjá hina fjallmyndarlegu og frábæru .......nei nú hætti ég, ég fæ ekkert borgað fyrir að segja þetta..... En áfram með þetta.... Mokveiðifélagsmenn..... og reyndu þeir með sér í kastkeppni og eru þeir efstir á blaði í þeim geiranum.... Allir þeir sem sáu þáttinn vita þetta allt saman en þið hinir verðið að bíða eftir að þetta kemur út á DVD...![]()
Hér fyrir ofan má sjá brot úr næsta þætti.....
15.04.2010 16:19
Sjóbirtingur dauður í Markarfljóti
Þetta hlítur að vera áhyggjuefni fyrir veiðiár á suðurlandi...
Myndir af þeim má skoða hérna
10.04.2010 22:38
Myndir af Opna húsinu

G-T bræður

Menn voru stífir í Happahylnum og ætluðu að vinna..

Allt klárt á barnum og Krafla var meðfæris

Siggi lét sig ekki vanta þó svo að valtari hafi keyrt yfir hann......
Myndirnar er komar inn á myndaalbúm
07.04.2010 09:04
Opið hús á föstudaginn

Nú er komið að opnu húsi hjá S.V.F.R og alveg tilvalið
fyrir menn að koma og fá sér einn ísssskaldan....
Margt verður um að vera eins og alltaf og ber þar helst að nefna
veiðistaðalýsingu af laxá í Dölum.
Ingumundur frá veiðikortinu kemur og fer yfir kosti þess að vera með veiðikortið.
Stofnendur veiðivefsins veidibok.is koma og fara yfir þessa mögnuðu síðu.
Benedikt frá Ellingsen kemur og sínir okkur nýjar línur og skothausa.
Sveinn Ingason verður svo með veiðistaðalýsingu á Laxá í dölum.
Myndagetraun frá Þorsteini F Guðmundssyni.
og síðast enn ekki síst stútfullur Happahylur í boði Ellingsen.
05.04.2010 23:46
Opið hús 9 apríl
Takið daginn frá.....

Föstudaginn 9 apríl verður opið hús hjá S.V.F.R
Hefst klukkan 20:15
Dagskrá auglýst síðar, en meðal þess sem verður á dagskrá er veiðistaðalýsing
á Laxá í Dölum
04.04.2010 14:22
Opnunar hollið


Opnunarhollið lauk í gær með brjáluðu veðri og frosti.. Menn létu sig og fóru ekki niður að á enda útlitið ekki bjart... 

Þetta endaði í einum 8 fiskum sem er bara ótrúlega gott miðað við að maður þurfti að brjóta úr augunum efitr hvert kast og fara inn í bíl til að ná tilfiningu í puttana..

Nú er bara að pakka öllum niður fram á sumarið.................Ekki sjéns við verðum að fara aftur :)
Myndirnar eru komnar inn á albúmið..
02.04.2010 20:08
2. Apríl
2. Apríl. Veðrið ekki upp á það besta -6 gráður snjór á köflum og vindur.. Ekki lét sú gula sjá sig en við náðum samt nokkrum á land....



Tekið 2.4 kl. 23:00
Síðasti dagur á morgum og 2er útlitið ekki bjart.... Munum samt akra út og setja í nokkra..
01.04.2010 20:30
Mok í Skagafirðinum ;)

Mokveiðibræður eru mættir í fjörðinn.
Frekar kallt er á norðurlandi þessa dagana og lánið viðrist alltaf elta strákana þegar nálgast 1apríl.
Ekki höfðu menn nú tröllatrú á að það kæmi murta upp í þessum kulda.
En strákarnir kunna þetta og þrátt fyrir -3 til -6 gráður yfir daginn þá tókst að slíta
upp nokkra fiska nánar til tekið 6 kvikindi.
Frekari fréttir af þeim verða settar inn um leið og eitthvað gerist en það var farið að snjóa þegar líða tók á daginn.
Nokkrar vakir eru á ánni og vonandi fjölgar þeim eitthvað í nótt
(ekki sjéns)
Lítið hefur verið um að menn séu að fá sér enda allir stakir bindindismenn :)
- 1


