Færslur: 2010 Mars

27.03.2010 23:15

Talandi um þá stóru



Svona aðeins til að sýna mönnum það að þetta eru bara tittir sem við erum að veiða hér á landi.....













Og hana nú  !

22.03.2010 18:16

Allt orðið autt..





                                                                                                                   Tekið 21.3 2010.


                                                                                                                      Tekið 6.3.2010

Nýjar myndir af hinum ástkæra Skagafirði..  Efri myndinn er tekinn í gær um kl 18:00 og sýnir það sem allir hafa verið að bíða eftir.. Klakkinn er farinn !

Neðri myndin er tekinn fyrir rúmum 2 vikum og þá er enn langt í land með að allt verði klárt..

Nú er bara að bíða en það gæti reynst erfitt, enda hefur frétts af mönnum sem eru þegar farnir að renna færinu í ánna þó svo að ekki sé kominn 1 Apríl..

16.03.2010 10:55

Mottumars hjá Mokveiðifélaginu


Það hefur líklega ekki farið framhjá neinum að það er mottumars
á íslandi í dag.

Mokveiðifélagar margir hverjir ætla ekki að láta sitt eftir liggja og safna
smá hormottu í tilefni þess.



Rock er að verða eins og klipptur úr vilta vestrinu.



Magnum44 er að verða alveg helvíti flottur og hefur Elín konan hans
meira að segja grátbeðið hann um að safna fram á haust.



Morgan getur líklega alveg eins safnað mottu eins og öllu þessu hári
og gengur bara nokkuð vel viku gamalt skegg og á örugglega eftir að ver
nokkuð gott í lok mars.

          
                  Gömul mynd af Killernum með alvöru mottu

Killerinn er nú eldri en tveir vetur í þessum málum og var hér á árum áður
með myndarlega mottu.
Hann lætur ekki sitt eftir liggja og er farinn að safna eins og þeir strákarnir.

Ekki hefur nú heyrst af fleyrri meðlimum félagsins vera að safna en myndir
af þeim verða þá birtar um leið og þær berast.

Fróðlegt verður að sjá myndir af opnunni í Húseyjarkvísl þegar þeir félagar
opna ánna 1.apríl.

Þeim sem langar að styrkja þetta annars flotta málefni er bent á þennan link
en þar eru þeir bræður Magnum og Morgan að safna áheitum ásamt
vinnufélögum og erum komnir vel í 150.000.kr

http://www.karlmennogkrabbamein.is/keppnin/keppandi?cid=1654


10.03.2010 20:09

Með öngullinn í rassinum..



Við hjá mokveiðifélaginu viljum benda fólki á og minna á að nú fer að styttast í að Skjár 1 fari að sýna hinu frábæru þætti " Með öngullinn í rassinum,,  þar sem þeir bræður Ási og Gunni Helgasynir fara á kostum ásamt ýmsum úr geiranum ( Veiðinni ).  Höfum við fengið að sjá smá brot af seríunni og viti menn " tær snilgd ,, Eitthvað sem menn og konur mega ekki missa af og hverjum við alla sem vetllinga geta valdið að kaupa áskrift að Skjá 1 og viti menn það er lítið mál..


                                                                                     Mynd fenginn af láni hjá þeim félögum..

Þeir bræður eru komnir með heimasíðu þar sem hægt er að fylgjast með framvindu mála hvernig gengur með þættina og allt þar á milli..  www.123.is/ongullinn endilega kíkið á það ..

Frétts hefur að Mokveiðimenn muni bregða fyrir í einhverjum þættinum og ekki megið þið missa af því..

06.03.2010 20:03

Menn urðu frá að hverfa !

Heldur betur var af fólki hjá okkur í gærkvöldi á opnuhúsi hjá Stangó og gekk þetta eins og í sögu..  



                    Þeir bræður mættu og kynntu myndaséríu sína sem á eftir að slá í gegn á Skjá 1.



          Óvæntur glaðningur var í verðlaun frá K.S og féll hann í heldur góðan jarðveg hjá gestum



     Gunni fékk einn vinning eftir að hafa látið skipta um dráttarstjóra og hafði heppnina með því



                         Ási reyndi að bjarga sér með því að draga sjálfur en ekkert hafðist upp úr því..



                         Þeir fengu sér 1 bjór á mann þessir.......  Einhvar annar á allan þennan bjór.....

Eitthvað af myndum er komið inná myndasafnið..

01.03.2010 20:02

Opið hús S.V.F.R


                            
                                               Nú á að vinna í happahylnum

            

Þá fer að koma að þriðja opna húsi vetrarins.
Föstudagskvöldið 5.mars kl 20:15 Háaleitisbraut 68

Dagskrá kvöldsins verður eins og vanalega ótrúlega skemmtileg og fer
hluti gömlu skemmtinefndarinnar þar með aðalhlutverk.

Þeir bræður Ási og Gunni verða á staðnum og ætla að reita af sér brandaranna og 
jafnvel einhver föt ef stemming er fyrir hendi.

Ætla þeir að fara yfir veiðiþættina sem þeir voru að framleiða í sumar og verða sýndir 
á skjá einum fljótlega.

þannig að mönnum gefst færi á að koma og sjá hvað er í vændum, en ef maður þekkir
þá bræður rétt verður grínið og glensið í fyrirrúmi.

Farið verður lauslega yfir hvað verður í þáttunum og sýndur einn þáttur


           
                     Hvor er hver?? Spurning um að fá sér aðeins stærri gleraugu

Einnig ætlar Jón G Bald að fara yfir perluna Stóru-Laxá í Hreppum af sinni einstöku snilld.

        
                              Gunnar Örlygsson og einn af dvergunum 7

Einnig verður Jónas með kynningu á Frances.is síðunni og flugunum sem hann
er með þar til sölu.

http://frances.is/

Myndagetaun verður á sýnum stað lauf-létt að vanda og hefur höfundur hennar
Þorsteinn Frímann Guðmundsson legið yfir veiðisvæðum s.v.f.r og þó sérstaklega
þeim svæðum sem Þórður Júlíusson hefur ekki farið á.

Happahylurinn heimsfrægi verður svo á sínum stað eins og venjuleg og ber enn
engin kreppumerki.

Heyrst hefur að Sogsmenn ætli að fjölmenn á svæðið og fylgjast með því að allt
fari löglega fram.

Sjáumst hress og kát

KV Skemmtinefndin
                                           

  • 1
Flettingar í dag: 384
Gestir í dag: 57
Flettingar í gær: 720
Gestir í gær: 111
Samtals flettingar: 890824
Samtals gestir: 188558
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 13:46:21