Færslur: 2010 Febrúar
22.02.2010 21:09
Aðalfundur
Aðalfundur verður haldinn 31. mars í veiðihúsi Húseyjarkvísl og hefst hann stundvíslega kl 00:00 með einu glasi af C.M.
Dagskrá verður með almennu sniði s.s skýrsla stjórnar, rekstraráætlun og kosning í nefndir og stjórn, en núvernadi stjórn gefur áfram kost á sér..
Önnur mál verða líka á borðstólnum s.s inntaka nýrra félaga, hvort að árgjöld eigi að hækka úr 60.000 uppí 80.000 en árgjöld eru tengd eldsneytisverði og dollar.. Stofnun fæðingarorlofssjóðar sem gerir það að verkum að meðlimir geti komist klakklaust í veiði hvernig sem aðstæður eru heima við. Þú átt þinn rétt !

Og síðs af öllu skal útnefna heiðuslimur Mokveiðisfélagsins og koma nokkrir sterklega til greina.. Og þá skal telja í engri sérstakri röð..
Össur Skarphéðinsson fyrir Ískalda-urriðann
Bubbi fyrir að sleppa öllum fiski sem hann veiðir
Árni Bald fyrir að sleppa öllum seiðum sem hann veiðir
Gunni H og Ási H fyrir að vera svona anskoti líkir
Ólafur Ragnar fyrir að synja Icesave og útiloka alla erlenda veiðimenn í íslenskum ám...
kv Stjórnin
19.02.2010 22:52
Upprifjun
Eitthvað gleymdist alveg í allri veiðini síðastliðið sumar.. Við reyndum okkur í strandveiði með misjöfnum árangri.. Eigum nokkrar myndir frá því og setjum þær því hérna inn núna.. Reyndar er kreppa í veiðifréttum þannig að þetta var kærkominn gjöf í skammdeginu..
Eins og þið sjáið þá er enginn afli og spurning hvort að ekki þurfi að taka þessa menn á smá námsskeið í strandveiði fyrir komandi tímabil...
07.02.2010 14:28
Magnað Föstudagskvöld

Það var heldur betur mæting á fyrsta opnahúsið hjá S.V.F.R sem haldið var nú á Föstudagsvöld í húsakynjum Stangó. Fullt var út úr dyrum og varð fólk við að hverfa... Dagskráin var ekki að verri endanum þó svo að umfjöllun um Dalina hafi dottið niður vegna ófyrirsjáalega atburða, en það verður reynt að endurtaka þann atburð við næsta tækifæri.. Við látum myndirnar tala sínu máli..
Hérna er hægt að skoða myndirnar .

Flottir á því þessir .. Héldu barnum allveg uppi

Fékk Flott flugu box frá KRÖFLU í vinning í Happahylnum

Heppinn vinningshafi. Robbi fékk að vaska upp með strákunum og ganga frá..
03.02.2010 08:51
Opið hús S.V.F.R

Jæja þá er komið að opnu húsi hjá Stangaveiðifélagi Reykjavíkur.
Föstudaginn 5.feb og opnar húsið kl 20:00
Dagskrá
*Farið verður yfir ný svæði í söluskrá S.V.F.R
*Guðni Guðbergsson frá veiðimálastofnun fer yfir veiðisumarið 2009 og verður með sjóðheita veiðispá fyrir veiðisumarið mikla 2010.
*Karl lúðvíksson fer yfir nýjustu þætti sína þar sem hann veiðir ásamt vinum sínum ásamt gömlum klippum
*Hjalti Björnsson formaður Fræðslunemdar ætlar að ræða um nýtt veiðisvæði félagsins Laxá í Dölum
*Myndagetraun verður á sínum stað
*Stútfullur happahylur sem allir geta veitt í
*Ískaldur á kantinum og þorramatur í smakk með fyrir þá sem þora...
Nú er um að gera að hita sig upp fyrir þorrablótin og slaka á sig einum jafnvel tveimur ísköldum...


Kv Skemmtinefndin


