Færslur: 2010 Janúar
31.01.2010 21:48
Smá ís
Húseyjarhvísl 31.jan 2010
Þá er ekki nema tæpur mánuður í að við förum að renna fyrir birting og annað kvikt í Húseyjarhvísl. Ennþá er nokkuð um ís á ánni og verður eitthvað í það að allt verður farið af henni. Samt eru komnar lænur víðast hvar og er það áhyggjuefni þar sem fiskurinn hefur þá vakir til að læðast um.. En nú er bara að bíða og vona.
Húseyjarhvísl 31.jan 2010
Skrifað af Veiðifélagið
24.01.2010 22:42
Veiðileyfi
Mokveiðifélagið hefur fengið í einkaleigu alla skurði í Blönduhlíðinni plús affallann hjá Badda.. Þetta er perlan í leyfunum sem við höfum uppá að bjóða og erum stoltir að hafa náð þessu..

Rock með 1 vænann 83 cm úr Affallanum
Leiguverð fæst ekki uppgefið en heyrst hefur að það nemi um 360 milljónum króna á ári og verður það að teljast ótrúlega gott verð miðað við sambærilegar urriðaár á landinu svo sem Laxá í Laxádal og Grenilæk svo eitthvað er nefnt.. Stjórnin mun opna veiðina 1 maí með 4 daga holli og verður mikið um urriðann vonandi.. Búið er að verðleggja dagna og virðist sem 3.daga holl leggji sig á rétt rúmar 850 þús plús fæði og húsnæði en það er skyldu fæði í húsinu.
Hið nýja veiðihús
Búið er að innrétta þetta líka fína hótel við bakka Framnesskurðar.. Nú er bara að drífa í að panta lítið er eftir.....

Guðlaugur Jónsson með 18 punda úr Réttarholtsskurði
Skrifað af Veiðifélagið
20.01.2010 21:13
Topp flugurnar
Hérna settum við saman lista fyrir þær flugur sem við höfum mesta ánægðu með að nota.. Kannski það gildir ekki um aflan sem kemur á færið..
Nr. 1 Kollskeggur

Nr. 2 Skröggur

Nr. 3 Sunray Shadow

Nr. 4 Eldurinn

Nr. 5 Elliðirauður

Nr. 6 Þýsk snælda

Nr. 7 Hairy Mary

Þetta eru þær flugur sem okkur þykja skemmtilegastar og flottastar.. En svo er spurning hvort að allir séu sammála okkur, eflaust eru margar sem ekki eru hérna inni og auðvita eigum við fleiri upphalds flugur en ég nennti ekki að gera meira..
Nr. 1 Kollskeggur
Nr. 2 Skröggur
Nr. 3 Sunray Shadow
Nr. 4 Eldurinn
Nr. 5 Elliðirauður
Nr. 6 Þýsk snælda
Nr. 7 Hairy Mary
Þetta eru þær flugur sem okkur þykja skemmtilegastar og flottastar.. En svo er spurning hvort að allir séu sammála okkur, eflaust eru margar sem ekki eru hérna inni og auðvita eigum við fleiri upphalds flugur en ég nennti ekki að gera meira..
Skrifað af Veiðifélagið
16.01.2010 16:36
´Styttist í opnun
Nú fer að styttast í að stangirnar verða tekna út úr fylsnum sínum og þær pússaðar og bónaðar því að þetta tímabil byrjar formlega hjá okkur 1. Apríl í Húseyjarhvísl og þá verður vonandi ekki frosið og ekki af mikið vatn.. En þessa dagana styttir maður biðina með að horfa á veiðiþætti og láta sig dreyma.. Afhverju tekur laxinn, Svona tekur laxinn og t.d cracking the code and The perfect cast. Þetta yljar manni og maður getur reynt að læra eitthvað af þeim en reyndar kunnum við þetta allt og höfum verið að kenna þeim undirstöðu atriðin..
Klikkaðu á kappann til að sjá hvað hann er að bralla

Klikkaðu á diskinn til að horfa á hann
Klikkaðu á kappann til að sjá hvað hann er að bralla

Klikkaðu á diskinn til að horfa á hann
Skrifað af Veiðifélagið
04.01.2010 22:12
Myndbönd
Hentum saman smá bandi um hvað við vorum að stússa í sumar.. Endilega kíkið á þetta og rifjið líka upp eldri bönd..
Þetta getur tekið smá stunda að hlaðast inn, sýnið biðlund !
nýtt band
Skrifað af Veiðifélagið
Flettingar í dag: 60
Gestir í dag: 32
Flettingar í gær: 608
Gestir í gær: 146
Samtals flettingar: 806766
Samtals gestir: 174240
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 03:02:30

