Færslur: 2009 Desember

24.12.2009 14:05

20.12.2009 11:45

Sumarið ´09





Formlega höfum við ekki enn gert upp veiðisumarið nú í sumar...  Byrjaði þetta á opnum í Húseyjarhvísl 1. Apríl við erfiðar aðstæður, klaki og kuldi og ekkert hægt að gera nema sötra C.M..  Svo rættist nú aðeins úr þessu þegar leið á vikuna og náðum við að vippa fiskum upp á síðust dögunum..





Þá var komið að hinni svakalegu ferð í Laxá í Kjós.  Verður seint eða aldrei toppað hjá okkur ..  Mættum og byrjuðum á því að fá erfitt svæði,  nr. 4 en þar var engan fisk að sjá..  Vöknuðum þá ekki mjög vongóðir næsta morgum en það átti heldur betur eftir að breytast..  Mokuðum upp þarna slatta af fiskum við skemmtilegar aðstæður sem frægt er orðið..






Húseyjarhvísl 3. Júli..  Mættir í miklum vatnavöxtum en gerðum okkar besta eða það myndum við halda, 90 cm fiskur er bara mjög gott..  Tökum þessa daga frá aftur..






Nýjar lendur,  Þverá í Fljósthlíð.. Komum sáum og sigruðum..  Skemmtilegt svæði lítið vatn en mikið af fiski..







Iðan Sveinn fór fyrir fríðum hópi fólks og gerður þeir sér lítið fyrir og rifu upp meðalaflan um helming eða svo..











Þá var komið að Jöklu.  900 km aðraleið plús 50.000 króna reikningi frá Ríkislögreglustjóra.  Það verður erfitt að draga menn næsta sumar..  En þetta var bara svo helvíti gaman, þannig að þetta eru smá munir miðað við alla þessa veiði og allar þessar ár.... 









Hólsá.. Þetta árlega eins og allt annað hjá okkur..  Þetta veður meira og meira uppá sig..  Rjómablíða og allar famelíurnar með.  Settum í eitthvað á nokkra tugi fiska en lönduð eitthvað örlítið minna..













Og þá var komið að Húseyjarhvísl í þriðjaskiptið..  Endalaust gaman.  Settum í mikið af fiski og nokkrir vel yfir 90.5 cm.  Þetta fer að verða árlegt að landa þeim stóru...... já hjá sumum..















Þessu var svo lokað með lokadegi í Húseyjarhvísl í lok sept..  Kuldi, vosbúð og lítið af víni.... Nei..  En eitthvað klikkaði nú hollið á undan okkur,  Þegar kapparnir ætluðu að mæta í hús þá ligga allir meðlimir hollsins á unda í pottinum og hreyfa sig hvergi..  Segja eiga 1 dag eftir og fara ekki fet fyrr en á morgun..  Við þessir rólegu strákar gáfum okkur eins og skot og fórum á hótel Amý og þökkum henni allar veitingar og þá toppþjónustu sem í boði var með Koníaki .  En aftur að veiðinni..  Enn og aftur 90 cm menn fara að verða leiðir á þessum fiskum.. Nú viljum við fara yfir 100 cm...






01.12.2009 22:41

Opið hús S.V.F.R


                                       

Fyrsta opna hús vetrarins verður haldið á föstudaginn 4.des.kl 20:00
Háaleitisbraut 68
Dagskráinn verður fjölbreytt og skemmitleg að vanda
.

                    

*Séra Pálmi Mattíasson kemur og blessar veiðimenn og predikar yfir þeim
sem þurfa á því að halda.

*Guðmunur Stefan Maríusson fomaður S.V.F.R fer yfir síðasta sumar og
svarar spurningum um það næsta.

*Lárus Karl Ingaon fer yfir nýju bókia sína um silungaflugur.

*Bubbi Mortens og Einar Falur fara yfir bókina og dvd diskinn um Laxá í Aðaldal

*Óli Kr fer yfir uppáhalds veiðistaðina sína í Soginu í máli og myndum.

*Myndagetraun verður á sínum stað

*Og síðast en ekki síst verður Happahylurinn stútfullur af vinningum
í boði Intersports

 
                          

                               



Nú er um að gera að fjölmenna og sletta aðeins úr klaufunum...
Svo sjaldan sem maður lyftir sér nú upp

                      
                                 Skemmtilega nefndin
    Flettingar í dag: 60
    Gestir í dag: 32
    Flettingar í gær: 608
    Gestir í gær: 146
    Samtals flettingar: 806766
    Samtals gestir: 174240
    Tölur uppfærðar: 8.2.2012 03:02:30