Færslur: 2009 Október
29.10.2009 19:29
Öryggið á oddinn ( hlaupið )
Við hjá Mokveiðifélaginu viljum minna félagsmenn á að fara varlega nú þegar rjúpnaveiðitímabil er að ganga í garð. Mikilvægt er að fara eftir þeim reglum sem eru í gildi og fara vel yfir ferðaáætlu og verður..

Góða ferð..
Góða ferð..
Skrifað af Veiðifélagið
23.10.2009 08:34
Andrés og félagar
Bræðurnir 3 fóru og náðu í nokkrar steikur fyrir villibráðakvöldið mikkla.
Töluvert magn var að önd á svæðinu en þar sem Amma Bára er
lítið fyrir andamorð var þetta allt gert í hófi.
7.endur lágu og ein heiðagæs sem átti leið framhjá varð fyrir voðaskoti.
Nú eru menn að gera sig klára fyrir fyrsta Rjúpnaveiðidaginn sem er
eftir viku og ekki laust við að það sé komin spenningur í mannskapin.
Rip Rap og Rup
Skrifað af Veiðifélagið
14.10.2009 19:21
Opið hús í Intersport
Nú er ekki spurning um að skella sér á Skotveiðikvöld í Intersport
annað kvöld og ná sér í það sem uppá vantar í veiðidótið (maður getur alltaf blómum á sig bætt)
Opið hús verður í Húsgagnahöllinni fimmtudagskvöldið 15 okt (gamli góði rjúpnaveiðidagurinn)
frá 19:30 til 21:30 og nokkuð ljóst að menn geta náð sér í rjúpnaskotin fyrir komandi tímabil.
Einning er alltaf eitthvað sem manni vantar í stangaveiðina.
Skrifað af Veiðifélagið
14.10.2009 12:04
Helsingjaveiðar
Mokveiðifélagið fór heldur betur og dró björg í bú fyrir veturinn.
Nokkrir meðlimimir mokveiðifélagsins fóru í gæs austur fyrir fjall, fyrir nokkrum
dögum síðan og var heldur betur sláturtíð.
Hvar er Steini????
Fleyri myndir og fréttir koma af þessari ferð von bráðar.
Skrifað af Veiðifélagið
Flettingar í dag: 60
Gestir í dag: 32
Flettingar í gær: 608
Gestir í gær: 146
Samtals flettingar: 806766
Samtals gestir: 174240
Tölur uppfærðar: 8.2.2012 03:02:30

