Færslur: 2009 September

28.09.2009 17:28

Hnúðlax Hryggna

Sá einstaki atburðu henti okkur Mokveiðimenn að Hnúðlax sá ástæðu til að bítaá hjá okkur og það reyndar á Skrögginn þá snildar flugu.  Var þetta myndar hryggna og heyrst hefur að það hafi aldrei áður ske hér á landi..


                                                                                                              Rock með þessa líka furðulega skeppnu...

Hryggnan  var  um 45 cm ekki stór en heldur feit og kominn að hryggningu..  Því miður var henni ekki sleppt aftur því að menn vissu ekki hvað var komið á land þarna í myrkrinu..



En er þetta  komið til með að vera fastur fylgifiskur í okkar ám  ?

26.09.2009 20:09

Smá skytterí



Vegna fjölda tuða þá skelltum við okkur í smá hitting nú í dag..  Norðan sunnan hávaða rok með snjókommu og óðeði,, En allt kom fyrir ekki og það lágu um 10 endur og 4 gæsir..  Það virtis sem að einhverjir hafa farið á undan okkur á þessa staði þar sem lítið sem ekkert af fugli sást...  Vitið þið ekki að við eigum þennan fjörð og menn þurfa að fá leyfi hjá okkur til að fá að skjóta...

                 


               

Sennilega verður ekkert farið á morgum þar sem við ætlum að skella okkur á réttarball nú á eftir og sennilega verður fengið sér eitthvað fljótandi...

                  

              


23.09.2009 11:37

Húseyjarkvís 19-22 sept


                        
                                                     Killerinn og Nonni

Mokveiðifélagið gerði ágætan túr í Heimahagana um hegina.

Eitthvað voru menn nú frekar ákafir í að komast norður og voru
mættir einum degi of snemmaemoticon helvít... djö... helv..

En það kom ekki að sök og fóru menn þá bara í byssuskápinn og
náðu sér í nokkrar endur og Mamma fékk að hafa strákana sína
eina nótt í viðbót heima.

Þetta byrjaði allt frekar rólega og mikið af laxinum virtist vera lagst
og ekki mikil hreyfing á honum.

Mönnum tókst þó að koma honum á hreyfingu og slíta upp 5.laxa og
missa talsvert marga.

Sjóbirtingurinn virtist vera að hella sér inn og veiddust 16.stk allt að 76.cm

          
                             Baukurinn fékk einn alvöru á Orange Kröflu 94.cm

Baukurinn bjargaði svo endalega hollinu með þessum glæsilega laxi
og var hæst ánægður með afrekið.

Menn voru nú frekar mikið að missa laxana framan af og fóru Rock
og Morgan það fremstir í flokki.

Rock missti einn eftir langa baráttu í laxhyl sem rauk svo niður undir brú
og þar endaði bardaginn og laxinn hafði betur, nokkrum sinnum 
sýndi hann sig á leiðinni og nokkuð ljóst að hann var vel yfir 90.cm.

                          
                               Doktorinn með flotta 83.cm hrygnu tekin á Orange Kröflu

          
         Rock fékk flottan lax í Gullinu á Eldin      og   Logi fékk þennan sjóbirting Einnig á Eldin

          
Morgan náið loksins að ná einum á land á Kröflu Eldinn og Rock var sjóðandi heitur í sjóbirtingunum og landaði hverjum á fætur öðrum

Er þetta góður endir á frábæru veiðisumri hjá Mokveiðimönnum og ljóst að hundrað
laxa múrinn er líklega ekki langt frá að vera rofin.

Myndir eru komnar inn í myndaalbúm og fleyrri munu bætast við þar fljótlega

22.09.2009 11:08

Húseyjarkvísl 18sept- já nei 19-22sept


         

Mokveiðifélagið var að klára síðustu veiðiferðina sína í Húseyjarkvísl.
Pistill og myndir verða settar inn sem fyrst, en Baukurinn náði einum svakalegum.

16.09.2009 22:11

Vatnsdalsá


Fjári bauð Morgan frænda að koma og leysa veiðifélagan sinn af
hólmi á mánudag og 1/2 þriðjudag í Vatnsdalsá.

Ekki þurfti að suða mikið til að fá hann til þess og veiðidótið að
sjálfsögðu alltaf á sínum stað og tilbúið í næstu ferðir.

Mikið rok var í dalnum og voru menn vægast sagt orðnir vel
vindbarnir eftir mánudaginn.

Á þriðudagsmorgninum fóru hlutirnir loksins að gerast og áttu þeir frændur
Hnausastreng um morguninn.

Ekkert gekk í fyrstu rennslum en það var ekki fyrr en Morgan setti undir
orange kröflu að allt varð brjálað, setti strax í flottan lax en var ekki
betur undirbúinn að lúppan fór af helví..... línunni
Morgan tók þessu af stakri ró og varla kom upp úr honum eitt
einasta blótsyrði..... nei það er rugl hann þurfti að fara með
13 Maríubænir um kvöldið.

Línan var svo græjuð og aftur sett undir orang Krafla og eins og við
mannin mælt lax á og þessi átti aldrei sjéns og var nánast hennt á land.
flottur 72 cm hængur.

        
                72 cm hængur sem tók Orang Kröflu (uppáhalds flugu Doktorsins)

Svo settu þeir í nokkra fiska í viðbót en Morgan prufaði svo Kröfluna Eldinn
og setti í eitthvað skrímsli sem varla kippti sér upp við það þegar var
brugðið við honum heldur var eins og maður hafði fest í botni,,, en
svo fór bara botnin rólega af stað damlaði upp hylin tók svo einn
snúning og spýtti flugunni út úr sér.

Þarna er nóg af stórlöxunum og spennan ein við það að kasta á þessi
kvikindi er nóg út af fyrir sig.
En klárt mál að á næsta ári verður farið og náð skrímslinu.

16.09.2009 15:53

Breytt Rjúpnaveiði tilhögun

Umhverfisráðherra hefur ákveðið að fyrirkomulag rjúpnaveiða í haust verði með nokkuð breyttu sniði frá fyrra ári. Tveimur helgum verður bætt við tímabilið en á móti kemur að veiðihelgar verða styttar úr fjórum dögum í þrjá. Því verða veiðidagar átján eins og í fyrra. Nú verður veiði heimil á föstudögum, laugardögum og sunnudögum og tímabilið hefst frá og með 27. október og stendur til og með 6. desember.



Sú nýbreytni hefur orðið að nú er gert ráð fyrir að reglugerðin gildi til þriggja ára, nema að óvænt þróun verði í rjúpnastofninum á þeim tíma. Þess vegna er fyrsti veiðidagur í ár ekki fyrr en 30. október þrátt fyrir að veiðitímabilið hefjist 27. okóber samkvæmt reglugerð.

15.09.2009 22:24

Nýtt myndb...

Setti inn nýtt kyningarmyndband af veiðiferðini í Húseyjarhvísl nú í lok ágúst..

Myndband

09.09.2009 22:12

Kreppufréttir



Þannig er nefnilega það..  Kreppa í veiðifréttum nema það að hvert metið af öðru er slegið þessa dagana, risa fiskar, flestir fiskar og mokveiðifélagið ekkert að veiða þessa helgina. 
En það fer nú eitthvað að lagast og mætum við hressir í hvíslina 18. en ekki 15. eins og einhverjir ætluðu að mæta.. 



 Fréttst hefur að Doktorinn sé búinn að fara í Hagkaup og versla inn 7235gr af bland í poka ef ske kynni að hann mundi draga um að vera með þeim gamla á stöng, allur er varinn góður,,, Morgan hefur kortlagt Laxhyl og er kominn með nýtt plan, mikrópöddur og ekkert annað verður undir hjá honum, nú skal hann liggja..  Magnum ætlar að sofna snemma vikuna á undan þannig að hann geti vakað pínu með strákunum... Rock ætlar að fjárfesta í nýjum tvíkrækjum því að sennilega voru þær gallaðar sem hann var með, helvítis Réttarhylur...




En ef eitthvað kemur upp og menn vilja láta strákana njóta fríar veiði þá erum við lausir fram að 18.. :)

04.09.2009 17:54

Doktorsfrúin í Jöklu


                      
                              Guðrún með lax fyrr í sumar á Jöklusvæðinu

Guðrún fékk bændadag á Jöklusvæðinu í dag.  Hún fór í morgun í 
Fögruhlíðarána og byrjaði efst á veiðisvæðinu.  Hún gerði allt eins 
og Morgan (uncle Buck) hafði kennt henni fyrr í sumar í efstu hyljum 
árinnar en varð ekki vör.  

       
                                                      Fögluhlíðará

Hún veiddi sig svo áfram niður ánna.  
Þegar hún  var búin að veiða Kvíavaðshyl í nokkra stund án þess að 
verða vör hringdi hún í læknavaktina á Sjúkrahúsinu á Akureyri og 
fékk þar þau ráð að halda áfram að kasta og reyna fleiri flugur enda 
öruggt að í þeim hyl væru fiskar. 

Eftir nokkrar flugur í viðbót fóru 
laxarnir í hylnum loks að stökkva og þá var ekki að spyrja að 
leikslokum.  Tveir laxar komu á land um leið, 4 og 6 pund.

     

Eftir hádegi fór hún síðan í Laxánna og þar hélt veiðin áfram.  Mikið 
líf var á Eiðsbreiðunni og hver laxinn af öðru reif í hjá henni.
þangað til hún var búinn að landa þremur 4-6 punda löxum í viðbót.  
Dagurinn endaði síðan uppi í Laxárfossi.  Þar fékk hún sjötta lax 
dagsins.  Í þetta skiptið tók fiskurinn svartan Tóbý enda var hún þá 
orðin svo þreytt í handleggjunum að hún treysti sér ekki lengur að 
kasta flugunni!!

Doktorinn sem er heimavinnandi húsmóðir heima á Akureyri á meðan
konan hans er að moka honum upp vildi lítið tjá sig um málið
þegar fréttamenn Mokveiðifélagsins hringdu í hann í gær,
sagðist engan tíma hafa fyrir viðtöl þessa stundina enda
þvottavélin búinn og hann væri að byrja að skúra.

Á morgun ætlar Guðrún að fara á efri svæði Jöklu og byrja á 
Hvannárbreiðunni en þar hafa veiðst laxar í sumar.

                    
Ekki er ósennilegt að Guðrún kíki aðeins í hylin sem skýrður
var í höfuðið á pabba hennar þegar Doktorinn veiddi fyrsta laxinn
sem vitað er til á þessu svæði fyrr í sumar.

Myndir af löxunum hennar Gunnu verða birtar um leið og Doktorinn
fær þær sendar og hann búinn með heimilsverkinemoticon




  • 1
Flettingar í dag: 384
Gestir í dag: 57
Flettingar í gær: 720
Gestir í gær: 111
Samtals flettingar: 890824
Samtals gestir: 188558
Tölur uppfærðar: 19.5.2012 13:46:21